Nordic MDS-group Introduction Patient informations
Danish
|
BlóðhlutagjafirAlgengasta vandamálið í MDS er blóðleysi. Þú getur fengið meðferð með gjöf rauðra blóðkorna til þess að hækka "Hb" og draga úr þreytu og slappleika sem oft fylgir blóðleysi. Flestir sjúklingar læra með tímanum hvaða Hb-gildi þeir þurfa að ná til þess að líða sem best. Þess vegna er mikilvægt að þú reynir í samráði við lækni þinn og hjúkrunarfræðing að finna hvaða Hb-gildi hentar þér. Maður getur fengið blóðgjafir í mörg ár og jafnvel fleiri áratugi. Hver poki með rauðum blóðkornum inniheldur þó aukabirgðir af járni, sem veldur því að líkaminn safnar upp of miklum járnbirgðum. Fylgst er reglulega með járngildum í blóði og með tímanum getur orðið nauðsynlegt að gefa þér lyf til að minnka járnbirgðirnar í líkamanum. |
Current newsAugust 2008, Newsletter NMDSG Next NMDSG meeting Meeting Minutes Meeting agenda Invitation to meeting Meeting Minutes |
|||
|
© 2004-2008
nordicmds.org |
|||||
|
|||||